Blöndulína 3 - styrking flutningskerfis á Norðurlandi
Smelltu á mynd til að stækka
Fyrirhuguð lega Blöndulínu 3.
Unnið er að undirbúningi að lagningu Blöndulínu 3, 220 kV háspennulínu milli Blöndustöðvar og Akureyrar. Verkefnið tengist áformum um uppbyggingu orkufreks iðnaðar í Eyjafirði en er jafnframt fyrsti áfangi í endurbyggingu byggðalínuhringsins fyrir aukinn orkuflutning.
Núverandi byggðalína mætir ekki lengur þeim kröfum sem gerðar eru til Landsnets varðandi rafmagnsgæði og afhendingaröryggi og frekari álagsaukning er ekki möguleg nema að mjög takmörkuðu leyti. Einnig þarfnast hún víða endurnýjunar sökum aldurs.
Unnið hefur verið að skipulagsmálum milli Blöndustöðvar og Akureyrar í góðu samstarfi við viðkomandi sveitarfélög. Jafnframt er unnið að margvíslegum náttúrufarsrannsóknum vegna verkefnisins.
Mat á umhverfisáhrifum
Drög að tillögu að matsáætlun voru auglýst á haustdögum 2008 og undir árslok samþykkti Skipulagsstofnun matsáætlun fyrir verkefnið.
Framkvæmd verksins hefur verið frestað miðað við fyrstu tímaáætlanir en gert er ráð fyrir að ljúka vinnu við skipulagsmál og mat á umhverfisáhrifum á árinu 2009. MANNVIT verkfræðistofa verkstýrir matsvinnunni fyrir hönd Landsnets.
Matsáætlun/Blöndulína 3
Matsáætlun/Blöndulína 3 DRÖG