Bolungarvíkurlína 2 - Framkvæmdum Lokið
Smelltu á mynd til að stækka
Bolungarvíkurlína 2 - yfirlitskort.
Framkvæmdum er lokið við lagningu Bolungarvíkurlínu 2, 66 kV jarðstrengs sem liggur 12 km leið milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur.
Framkvæmdin styttir tenginguna milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur um 4,5 km og eykur afhendingaröryggi raforku á norðanverðum Vestfjörðum.
Hafist var handa við lagningu strengsins, 5,5 km leið, í hin nýju Bolungarvíkurgöng sem liggja milli Hnífsdals og Bolungarvíkur, í janúar á þessu ári. Lagning strengsins utan ganga hófst í júní 2010 og lauk mánaðamótin október - nóvember. Samhliða þeirri framkvæmd var lagður göngustígur milli Ísafjarðar og Hnífsdals.
Háspennustrengurinn, sem framleiddur er af Südkabel í Þýskalandi, er 150 q álstrengur og flutningsgeta hans er 28,5 MVA.
Smelltu á mynd til að stækka
Verktakar við jarðvinnu og lagningu strengsins voru:
Ósafl, verktaki Vegagerðarinnar við gerð Bolungarvíkurganga, sá um lagningu strengsins í jarðgöngin.
KNH var með breikkun vegskeringar meðfram Hnífsdalsvegi á sinni könnu
og Steypustöð Skagafjarðar sá um aðra jarðvinnu og strenglögnina sjálfa.
Netrekstrardeild Landsnets sá um tengingar strengsins með aðstoð sérfræðings frá Südkabel.
Tækniþjónusta Vestfjarða ásamt Verkís sá um hönnun strenglegu og útboðsgögn jarðvinnu.
Verkís var með verkeftirlit.
Lagning strengsins í jarðgöngin var unnin samhliða annarri lagnavinnu þar.
Utan ganga var verkið boðið út ásamt lagningu 11 kV strengs fyrir Orkubú Vestfjarða, göngustíg fyrir Ísafjarðarbæ og nokkurra minni verkefna fyrir Vegagerðina.
Lagning strengsins gekk vel og var verktakinn með 5-7 menn við lagninguna að staðaldri. Öryggismál verktaka voru í góðu lagi.

