Búðarháls - Tengivirki og háspennulína
Smelltu á mynd til að stækka
Búðarhálslína 1 - yfirlitskort.
Landsnet vinnur að undirbúningi tengingar fyrirhugaðrar Búðarhálsvirkjunar við meginflutningskerfið.
Tengingin felur í sér lagningu Búðarhálslínu 1, háspennulínu frá Búðarhálsi að Langöldu þar sem hún tengist inn á Hrauneyjafosslínu 1 ásamt byggingu nýs tengivirkis við Búðarhálsvirkjun.
Unnið er að breytingu á skipulagi svæðisins og verður verkhönnun línu og tengivirkis lokið vorið 2011.
Smelltu á mynd til að stækka
Mat á umhverfisáhrifum
Mat fór fram á umhverfisáhrifum Búðarhálsvirkjunar og Búðarhálslínu 1 fyrir nokrum árum og féllst Skipulagsstofnun á framkvæmdina með skilyrðum. Verkfræðistofan Hönnun (MANNVIT) verkstýrði umhverfismatinu.
Úrskurður Skipulagsstofnunar
Í stuttu máli
- Búðarhálslína 1 er um 5,6 km löng.
- Áhrifasvæði línunnar nær til Ásahrepps og Rangárþings ytra í Rangárvallasýslu.