Fljótsdalslínur 3 og 4
Smelltu á mynd til að stækka
Yfirlitsmynd yfir línuleiðir.
Fljótsdalslínur 3 og 4 liggja frá tengivirki Landsnets í Fljótsdal að álveri Fjarðaáls í Reyðarfirði.
Línurnar liggja samsíða yfir Víðivalla- og Hallormsstaðaháls yfir í Skriðdal. Þaðan liggur Fljótsdalslína 3 um Hallsteinsdal en Fljótsdalslína 4 liggur suður Skriðdal og áfram um Þórudal, Brúðardal og Þórdalsheiði. Línurnar sameinast á ný innst í Reyðarfirði og liggja samsíða út dalinn, ofan við kauptúnið í Reyðarfirði, að álveri Alcoa Fjarðaáls.
Fljótsdalslínur 3 og 4 eru byggðar sem 400 kV háspennulínur en eru reknar á 220 kV spennu.
Mat á umhverfisáhrifum
Skýrsla um mat á umhverfisáhrifum vegna línanna var send Skipulagsstofnun og var fallist á framkvæmdina þann 27. maí árið 2000.
Tvær kærur bárust umhverfisráðherra sem úrskurðaði í málinu þann 23. nóvember 2000. Línurnar fengu sérstaka svæðisskipulagsmeðferð og staðfesti umhverfisráðherra þann 24. apríl 2001 sérstakt svæðisskipulag fyrir Fljótsdalslínur 3 og 4.
Smelltu á mynd til að stækka
Í notkun í ársbyrjun 2007
Framkvæmdir við byggingu línanna hófust haustið 2004 með lagningu vegslóða. Vorið 2005 hófst vinna við jarðvinnu og undirstöðugerð. Lagðir voru malarbornar slóðar að flestum möstrum í línunni til efnisflutninga og aðkomu. Nýttir voru eldri slóðar á svæðinu, en gera þurfti talsverðar lagfæringar á þeim. Vinnu við alla jarðvinnu var lokið síðari hluta árs 2006 og voru línurnar teknar í notkun í byrjun árs 2007.
Að jafnaði unnu um 55 menn við jarðvinnu og niðursetningu á undirstöðum og um 80 menn unnu að jafnaði við reisingu og strengingu en þegar mest var voru þeir um 130 talsins.
Frágangur og verklok
Fallvarnir í snjóflóðamöstur verða settar upp aftur á árinu 2009 og einnig þarf að ganga frá landi í Áreyjadal og í Reyðarfirði, ásamt áburðardreifingu víða á línustæðinu.
Þá er áformað að lagfæra undirsteypu í hluta mastranna og koma fyrir merkingum á slóðum meðfram línunni.
Í stuttu máli
- Fljótsdalslína 3 er um 49 km löng með 159 möstrum og Fljótsdalslína 4 er um 53 km löng með 166 möstrum.
- Línurnar liggja um sveitarfélögin Fljótsdalshrepp, Fljótsdalshérað og Fjarðabyggð.
- Hæð mastra er á bilinu 20-37 m og þverslár eru um 25 m langar.
- Flutningsvirki vegna álvers Fjarðaáls kostuðu alls tæpa 9 milljarða króna á verðlagi í ársbyrjun 2004.
- Framkvæmdakostnaður við sjálfar línulagnirnar var um 4,4 milljarðar króna.
- Kostnaður við tengivirki í Fljótsdal var um 3 milljarðar króna og 1,2 milljarðar vegna tengingar við byggðalínur og styrkingar á hinu almenna raforkuflutningskerfi á Austurlandi.
Umhverfisúttekt
Umhverfisúttekt fór fram á framkvæmd verksins haustið 2007 og lá skýrsla um málið fyrir í október 2008.
Þátttakendur í úttektinni voru fulltrúar sveitarfélaga sem línurnar liggja um, eftirlitsaðilar með framkvæmdinni og fulltrúar Umhverfisstofnunar.
- Almenn niðurstaða var að frágangur væri góður meðfram línustæðum.
- Ganga þarf betur frá námum, plönum og slóðum á nokkrum stöðum.
- Athugasemdir voru gerðar við frágang á ræsum.
- Á nokkrum stöðum var drasl sem þarf að fjarlægja sem og merkingar vegna framkvæmda sem nú er lokið.
Fljótsdalslínur 3 og 4 – Umhverfisúttekt Landsnets