Landsnet :: Framkvæmdir :: Verkefni :: Kröflulína 2
Tengiliður
Albert Guðmundsson
Verkefnisstjóri
albert@landsnet.is
S: 515 8998

Kröflulína 2 og Fljótsdalslína 2

Smelltu á mynd til að stækka

Kortið sýnir gamla og nýja legu Kröflulínu 2 og Fljótsdalslínu 2.

Í úrskurði Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum Fljótsdalslína 3 og 4, frá 27. maí 2000, var sett það skilyrði að Kröflulína 2, frá tengivirki við Kröflustöð að tengivirki Landsnets við Hryggstekk í Skriðdal, yrði flutt og lögð suður eftir Fljótsdalsheiði, fram af Teigsbjargi, að tengivirki í Fljótsdal og þaðan í jörð að Brattagerði eigi síðar en árið 2006.

Í samræmi við þetta skilyrði var Kröflulína 2 rifin frá horni á miðri Fljótsdalsheiði að horni við eyðibýlið Brattagerði í Fljótsdal. Í staðinn var reist sambærileg háspennulína til suðausturs að horni sunnan við Garðavatn og þaðan fram af Teigsbjargi, að tengivirki Landsnets í Fljótsdal. Þessi línukafli er austasti hluti Kröflulínu 2.

Smelltu á mynd til að stækka

Línan frá tengivirkinu í Fljótsdal að Hryggstekk í Skriðdal heitir Fljótsdalslína 2. Lagður var 132 kV jarðstrengur frá tengivirkinu austur yfir Jökulsá í Fljótsdal og síðan að mestu meðfram vegi að Brattagerði þar sem tengt var inn á loftlínu sem liggur yfir Hallormsstaðaháls að Hryggstekk. Jarðstrengskaflinn er því fyrsti hluti Fljótsdalslínu 2.

Í stuttu máli

  • Línan sem var rifin var 12 km löng.
  • Nýr hluti Kröflulínu 2 er 11 km langur og 132 kV.
  • Nýr hluti Fljótsdalslínu 2 (jarðstrengurinn) er 7,5 km langur og 132 kV.

Frágangur og verklok

Á árinu 2009 er áformað að fjarlægja gömlu línuna frá Fljótsdalsheiði að tengivirkinu á Bessastöðum og áfram þaðan að Brattagerði. Jafnframt á að ganga frá landi meðfram nýja hluta línunnar.

Einnig er fyrirhugað að endurbæta niðurtök við tengivirkið í Fljótsdal og herða upp tengibúnað á stálmastrahlutanum.

  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410