Landsnet :: Framkvæmdir :: Verkefni :: Lagarfosslína 1
Tengiliður
Þórarinn Bjarnason 
Verkefinsstjóri
thorarinn@landsnet.is
S: 563 9359

Lagarfosslína 1

Smelltu á mynd til að stækka

Lagarfosslína 1 - yfirlitskort.

Unnið er að endurbótum á Lagarfosslínu 1, 66 kV línu frá Lagarfossi að Eyvindará.

Línan, sem byggð var 1974, er 27 km löng og tengir Lagarfossvirkjun og Eyvindará. Búið er að styrkja og skipta um leiðara á 22 km kafla en vegna ísingarhættu og ástands næst Eyvindará verður sá hluti lagður í jörð. Um 5 km kafli línunnar verður rifinn og í stað hans lagður um 6 km langur strengur.

Strengurinn og tengiefni var keypt frá Südkabel í Þýskalandi eftir útboð. Jarðvinna og lagning strengsins var boðin út í mars 2011 og var samið við lægstbjóðanda, Þjótanda ehf um verkið. Vinna hófst í byrjun júní og er áætlað að strengurinn verði tilbúinn til tengingar í byrjun september. Netrekstur Landsnets mun sjá um tengingar strengsins. Spennusetning er áætluð í nóvember 2011. Auk strenglagnarinnar verður lóð tengivirkisins að Eyvindará lagfærð ásamt því að gengið verður frá nýrri aðkomu að tengivirkinu. Reiknað er með að línan verði rifin í febrúar – mars 2012.

Í stuttu máli

  • Strengur Lagarfosslínu verður 5,9 km langur
  •  Rekstrarspenna strengsins er 66 kV
  • Strengurinn liggur innan sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs
  •  Ásýnd lóðar tengivirkisins að Eyvindará verður lagfærð
  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410