Neðri Þjórsá – tengivirki og háspennulínur
Landsnet vinnur að undirbúningi tengingar þriggja fyrirhugaðra virkjana í Neðri Þjórsá við meginflutningskerfið.
- Hvammsvirkjun tengist raforkukerfi landsins um Búrfellslínu 1 sem liggur um virkjunarsvæðið en jafnframt þarf að breyta legu línunnar á stuttum kafla vegna byggingar virkjunarmannvirkja.
- Holtavirkjun tengist landskerfinu með jarðstreng að Hellulínu 2.
- Urriðafossvirkjun tengist raforkukerfi landsins um Búrfellslínu 2 sem liggur í næsta nágrenni við fyrirhugaða virkjun.
Mat á umhverfisáhrifum
Árið 2003 voru Skipulagsstofnun afhentar til úrskurðar skýrslur um mat á umhverfisáhrifum vegna Hvamms-. Holta og Urriðafossvirkjana í Neðri Þjórsá og féllst stofnunin á framkvæmdina síðsumars með skilyrðum.
Niðurstaða Skipulagsstofnunar var kærð til umhverfisráðherra sem árið 2004 staðfesti niðurstöðu Skipulagsstofnunar með nokkrum viðbótarskilyrðum. Almenna verkfræðistofan og HNIT verkstýrðu umhverfismatinu á virkjununum í Neðri Þjórsá.