Landsnet :: Framkvæmdir :: Verkefni :: Nesjavallalína 2
Tengiliður
Ingólfur Eyfells
Verkefnisstjóri Landsnet
eyfells@landsnet.is  
S: 563 9351

Nesjavallalína 2

Smelltu á mynd til að stækka

Lega Nesjavallalínu 2.

Framkvæmdum er lokið við lagningu Nesjavallalínu 2, 132 kV jarðastrengs milli Nesjavalla og tengivirkis Landsnets á Geithálsi. Strengurinn er 25 km langur og er lengsti 132 kV jarðstrengur sem lagður hefur verið hérlendis og tryggir afhendingaröryggi orku frá Nesjavallavirkjun.

Tryggir afhendingaröryggi

Nesjavallalína 2 tryggir afhendingaröryggi orku frá Nesjavallavirkjun inn á meginflutningskerfi Landsnets og léttir jafnframt álagi af Nesjavallalínu 1 en jarðstrengshluti þeirrar línu var orðinn fulllestaður, og kominn að hættumörkum, eftir að Nesjavallastöðin var stækkuð í 120 MW.

Borað fyrir strengjum til að minnka jarðrask

Nesjavallalína 2 liggur um sveitarfélögin Grímsnes- og Grafningshrepp, Sveitarfélagið Ölfus, Mosfellsbæ og Reykjavík og var strengurinn að hluta til grafinn niður meðfram hitavatnslögninni frá Nesjavöllum til að lágmarka umhverfisáhrif. Framkvæmdin var ekki háð mati á umhverfisáhrifum, samkvæmt mati Skipulagsstofnunar, en mikil áhersla var lögð á að halda öllu raski í lágmarki við lagningu strengsins. Var m.a. borað fyrir honum á sex stöðum í gegnum fjallasvæði Dyrafjalla á Hengilssvæðinu til að lágmara jarðrask.

Framkvæmdir við Nesjavallalínu 2 hófust í júní 2009, útlögn strengja hófst 20. júlí og lauk 6. nóvember. Unnið var við yfirborðsfrágang fram í desember og lokafrágangur yfirborðs fer fram í vor.

Útlagning gekk hratt og vel

Háspennustrengurinn var keyptur af sænska Ericsson AB og sáu starfsmenn á þeirra vegum um samtengingar á honum. Ístak annaðist alla jarðvinnu og útlagningu á strengnum og þjónustaði jafnframt starfsmenn Ericsson við samtengingar á strengnum.

Um 55 manns unnu að jafnaði við lagningu jarðstrengsins. Gekk útlögn hans hratt og vel fyrir sig og voru að jafnaði lagðir um 2 km á viku. Verktakinn notaði tvær gröfur til að draga strenginn út af hverri rúllu og spil og kefli þar sem það var nauðsynlegt í skurðinum.

Verkfræðistofan Efla annaðist hönnun Nesjavallalínu 2 en umsjón og eftirlit með verkinu var í höndum verkfræðistofunnar Strendings og Rafskoðunar. Verkís sá um hönnun á tengivirki við Nesjavallastöð, Mannvit sá um hönnun endavirkis á Geithálsi.

Umhverfisúttekt

Umhverfisúttekt fer fram á framkvæmd verksins vorið 2010.

Í stuttu máli


  • Nesjavallalína 2, jarðstrengurinn frá Nesjavöllum að Geithálsi, er 24,6 km löng.
  • Jarðstrengurinn er grafinn niður og á nokkrum viðkvæmum stöðum á Hengilssvæðinu var borað fyrir strengnum.
  • Strengurinn er hannaður fyrir 140 MVA flutningsgetu.
  • Jarðstrengurinn liggur um sveitarfélögin Grímsnes- og Grafningshrepp, Sveitarfélagið Ölfus, Mosfellsbæ og Reykjavík.
  • Við undirbúning og framkvæmd verkefnisins var lögð sérstök áhersla á öryggis- og umhverfismál.
  • Engin óhöpp urðu við framkvæmdina og sérlega vel tókst til við að raska sem minnstu í náttúrunni og skilja vel við landið. Stefna Landsnets skilaði sér því vel í þessu verkefni.
  • Umhverfisúttekt fer fram á framkvæmd verksins vorið 2010.
Smelltu á mynd til að stækka

Tengivirki-Geithálsi.



  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410