Landsnet :: Framkvæmdir :: Verkefni :: Norðausturland
Tengiliður
Árni Jón Elíasson
Verkefnisstjóri
arnije@landsnet.is
S: 563 9350
Norðausturland-fyrirhugaðar línulagnir Smelltu á mynd til að stækka

Fyrirhugaðar línulagnir.

Norðausturland - flutningsvirki vegna orkufreks iðnaðar

Landsnet vinnur að undirbúningi tveggja 220 kV háspennulína frá fyrirhugðum virkjunarsvæðum á háhitasvæðunum í Þingeyjarsýslu að Bakka við Húsavík.

Verkefnið tengist áformum um álver á Bakka.

Mat á umhverfisáhrifum

Tillaga að matsáætlun var send Skipulagsstofnun í mars 2008 en vegna úrskurðar umhverfisráðherra um sameiginlegt umhverfismat fyrir virkjanir, flutningslínur og álver við Bakka hefur verkefnið dregist á langinn.

Sveitarfélögin á svæðinu vinna að breytingum á aðalskipulagi á grundvelli áður samþykkts svæðisskipulags.

Stefnt er að lúkningu vinnu við umhverfismat flutningsvirkja fyrir árslok 2009, samhliða hinu sameiginlega umhverfismati sem unnið er í samstarfi Alcoa, Þeistareykja ehf., Landsvirkjunar og Landsnets.

Tillaga að matsáætlun

Í stuttu máli:

  • Háspennulínurnar frá háhitasvæðunum að Bakka verða hvor um sig samtals um 60 km langar.
  • Gert er ráð fyrir tengivirkjum á Þeistareykjum, í Kröflu og Bjarnarflagi. Tengivirki á Bakka verður að líkindum á vegum orkunotanda. Á Hólasandi er staðsetning lína við það miðuð að síðar geti komið þar tengivirki.
  • Línurnar liggja um þrjú sveitarfélög; Skútustaðahrepp, Þingeyjarsveit og Norðurþing.
Séð í suðausturátt af Húsavíkurfjalli Smelltu á mynd til að stækka

Séð í suðausturátt af Húsavíkurfjalli yfir hluta fyrirhugaðrar leiðar háspennulína að Bakka.

  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410