Alcoa, Þeistareykir ehf., Landsvirkjun og Landsnet hf., standa að sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum álvers á Bakka við Húsavík, Þeistareykjavirkjunar, Kröfluvirkjunar II og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka. Fyrirhugaðar framkvæmdir eru í Norðurþingi, Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi.
Samkvæmt úrskurði umhverfisráðherra frá 31. júlí 2008 eru framkvæmdirnar háðar sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum, í samræmi við 2. mgr. 5. greinar í lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Matið nær til fjögurra ofangreindra framkvæmda. .
Tillögu að matsáætlun fyrir sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum verkefnanna fjögurra verður skilað inn til Skipulagsstofnunar samhliða nýjum tillögum að matsáætlunum fyrir Þeistareykjavirkjun og Kröfluvirkjun II. Skipulagsstofnun hefur þegar fallist á matsáætlun Landsnets fyrir háspennulínur að Bakka og matsáætlun Alcoa fyrir álver á Bakka.
Matsvinnan er hafin og má nálgast drög að tillögu að matsáætlun fyrir sameiginlegt mat hér á síðunni. Einnig eru tenglar inn á heimasíður viðkomandi fyrirtækja þar sem nálgast má matsáætlanir fyrir framkvæmdirnar fjórar. . Hægt er að senda athugasemdir og ábendingar á neðangreint póstfang eða með tölvupósti á netföngin rb@mannvit.is og albert@lvp.is:
Mannvit hf.
b.t. Rúnars D. Bjarnasonar
Grensásvegi 1
108 Reykjavík
Frestur til að gera athugasemdir er til 6. mars 2009.
Drög að tillögu að matsáætlun sameiginlega matsins
Tillögur að matsáætlunum framkvæmdanna fjögurra má nálgast hér:
Álver Alcoa á bakka
Þeistareykjavirkjun
Kröfluvirkjun II
Háspennulínur frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka við Húsavík