Landsnet :: Framkvæmdir :: Verkefni :: Norðausturland :: Mat á umhverfisáhrifum háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum

Mat á umhverfisáhrifum háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum

Frummatsskýrsla

Landsnet hf. hyggst reisa tvær 220 kV háspennulínur frá virkjunarsvæðum á háhitasvæðum í Þingeyjarsýslum að Bakka við Húsavík. Háspennulínurnar munu liggja um sveitarfélögin Skútustaðahrepp, Þingeyjarsveit og Norðurþing, um 60 km leið. Bygging háspennulínanna tengist frekari nýtingu háhitasvæðanna með nýjum virkjunum á Þeistareykjum, í Kröflu og Bjarnarflagi vegna áforma um orkufrekan iðnað á Bakka við Húsavík. Auk tveggja háspennulína felur framkvæmdin í sér lagningu 132 kV jarðstrengs frá fyrirhugaðri Bjarnarflagsvirkjun að tengivirki við Kröflu.

Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.br. Hafin er opinber kynning á vegum Skipulagsstofnunar og má nálgast frummatsskýrslu hér á síðunni ásamt viðaukum. Í frummatsskýrslunni er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst og gerð grein fyrir grunnástandi, helstu umhverfisþáttum og rannsóknum ásamt umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.

Allir hafa rétt á að kynna sér frummatsskýrsluna og koma athugasemdum og fyrirspurnum á framfæri til Skipulagsstofnunar sbr. upplýsingar á heimasíðu stofnunarinnar.

Sækja frummatsskýrslu og viðauka – apríl 2010

Frummatsskýrsla háspennulínur - PDF 59.134 KB 
Frummatsskýrsla háspennulínur - PDF 14.207 KB 
Viðauki 1 Landslag - PDF 5.741KB 
Viðauki 2 Efnistökusvæði - jarðmyndanir - PDF 25.698 KB
Viðauki 3 Gróðurathugun - PDF 16.611 KB 
Viðauki 3 Gróðurathugun á línuleið B - PDF 28 KB
Viðauki 3 Gróðurathugun-Kortabók - PDF 22.599 KB 
Viðauki 4 Fuglaskýrsla - PDF 15.299 KB
Viðauki 5 Ferðaþjónusta- PDF 6.029 KB
Viðauki 6 Fornleifar - PDF 9.485 KB 
Viðauki 7 Þeistareykjavegur - forhönnun - PDF 3.934 KB

Frestur til að gera athugasemdir er til 14. júní 2010.


Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum álvers, jarðhitavirkjana og háspennulína

Frummatsskýrsla

Alcoa, Þeistareykir ehf., Landsvirkjun og Landsnet hf., standa að sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum álvers á Bakka við Húsavík, Þeistareykjavirkjunar, Kröfluvirkjunar II og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka. Fyrirhugaðar framkvæmdir eru í Norðurþingi, Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi.

Samkvæmt úrskurði umhverfisráðherra frá 31. júlí 2008 eru framkvæmdirnar háðar sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum, í samræmi við 2. mgr. 5. greinar í lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Matið nær til fjögurra ofangreindra framkvæmda. Í frummatsskýrslu eru settar fram helstu upplýsingar um framkvæmdirnar fjórar. Gerð er grein fyrir grunnástandi, helstu umhverfisþáttum og rannsóknum ásamt sameiginlegum umhverfisáhrifum allra framkvæmda.

Frummatsskýrslu fyrir sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum verkefnanna fjögurra er skilað inn til Skipulagsstofnunar samhliða frummatsskýrslum fyrir Þeistareykjavirkjun, Kröfluvirkjun II, háspennulínur frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka og álveri á Bakka.

Allir hafa rétt á að kynna sér frummatsskýrsluna og koma athugasemdum og fyrirspurnum á framfæri til Skipulagsstofnunar sbr. upplýsingar á heimasíðu stofnunarinnar.

Sækja frummatsskýrslu og viðauka – apríl 2010.

Frummatsskýrla sameiginlegt mat og viðaukar -  PDF 15.711 KB

Frestur til að gera athugasemdir er til 14. júní 2010.

Tenglar á heimasíður viðkomandi fyrirtækja þar sem nálgast má frummatsskýrslur fyrir framkvæmdirnar fjórar eru eftirfarandi:

Kröfluvirkjun II
Þeistareykjavirkjun
Háspennulínur
Álver á Bakka




  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410