Landsnet :: Framkvæmdir :: Verkefni :: Rangárvellir
Tengiliður
Árni Sæmundsson
Verkefnisstjóri
arnisaem@landsnet.is  
S: 563-9352

Rangárvellir - stækkun tengivirkis fyrir Álþynnuverksmiðju

Smelltu á mynd til að stækka

Lega strengsins frá Rangárvöllum að verksmiðju Becromal á Krossanesi.

Landsnet vinnur að lokafrágangi vegna stækkunar tengivirkis á Rangárvöllum fyrir fyrsta áfanga álþynnuverksmiðju Becromal á Krossanesi.

Tengivirkið á Rangárvöllum er í útjaðri Akureyrar og var fyrst tekið í notkun 1974. Rangárvellir sjá Eyjafjarðarsvæðinu fyrir rafmagni. Helstu tengingar í Rangárvelli eru tvær 132 kV línur, Rangárvallalína 1, sem liggur í Varmahlíð, og Kröflulína 1 sem liggur í Kröflu.

Um er að ræða endurnýjun og stækkun þéttavirkisins og lok lagningar 4,5 km langs 132 kV jarðstrengs að Krossanestengivirkinu.

Smelltu á mynd til að stækka

Tengivirkið á Rangárvöllum.

Í stuttu máli

  • Lengd jarðstrengs frá Rangárvöllum að Krossanesi: 4,5 km.
  • Rekstrarspenna strengsins: 132 kV.
  • Stækkun tengivirkis: Tveir 132 kV reitir.
  • Endurnýjun þéttavirkis: 60 Mvar.
  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410