Landsnet :: Framkvæmdir :: Verkefni :: Suðvesturlínur
Tengiliður
Ingólfur Eyfells
Verkefnisstjóri
eyfells@landsnet.is
S: 563 9351

     Suðvesturlínur - styrking flutningskerfis á Reykjanesi

Suðvesturlínur-yfirlitskort Smelltu á mynd til að stækka

Yfirlitsmynd - Suðvesturlínur.

Verkefnið tekur til endurnýjunar á raforkuflutningskerfinu frá Hellisheiði að Geithálsi og Hafnarfirði og áfram út á Reykjanes. 

Orkukerfið frá Hellisheiði að Hrauntungum í Hafnafirði verður byggt upp á 400 kV spennu en kerfið á Reykjanesskaga á 220 kV spennu.

Endurnýjunin er brýn því núverandi kerfi er nýtt til fulls og annar ekki fyrirsjáanlegri eftirspurn á svæðinu í nánustu framtíð. Að verki loknu getur flutningskerfið flutt þá raforku sem ætla má að þörf verði fyrir á þessu svæði næstu áratugi.

Í stuttu máli

  • Gert er ráð fyrir nýbyggingu u.þ.b. 152 km af loftlínum auk endurnýjunar á um 19 km af endurnýjuðum línum í meginflutningskerfinu.
  • Nýjar tengingar orkunotenda og virkjana við meginflutningskerfið, alls 35 km af loftlínum og 54 km af háspennustrengjum í jörðu. 
  • Núverandi háspennulínur, alls 97 km af loftlínum, verða rifnar niður og fjarlægðar.
  • Ný tengivirki rísa á Hellisheiði, við Sandsskeið, Hrauntungur sunnan Hafnafjarðar og á Njarðvíkurheiði. 
  • Tengivirki við Rauðamel verður fjarlægt. 
  • Jarðstrengir verða lagðir frá Hverahlíðarvirkjun að tengivirki á Hellisheiði, frá Hrauntungum að Hamranesi og frá Fitjum að Helguvík vegna orkufreks iðnaðar þar.
  • Háspennulínurnar liggja um 12 sveitarfélög á svæðinu og snerta einnig alls um 150 landeigendur, bæði einstaklinga, félög og opinbera aðila.


 

Mat á umhverfisáhrifum

Umhverfismat og skipulagsvinna hefur staðið yfir frá árinu 2005 og er áformað að þeirri vinnu verði lokið seinni hluta ársins 2009. EFLA verkfræðistofa verkstýrir matsvinnunni fyrir hönd Landsnets.


Frummatsskýrsla
Kort og viðaukar vegna frummatsskýrslu
Tillaga að matsáætlun
Viðauaki 1 - Yfirlitskort
Viðauki 2 - Yfirlitskort - línuleiðir
Viðauki 3 - Svör við athugasemdum

Drög að tillögu að matsáætlun
Viðauki 1 – Yfirlitskort
Viðauki 2 – Yfirlitskort
Suðvesturlínur - kynningarbæklingur
Suðvesturlínur.is
  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410