Sultartangalína 3
Smelltu á mynd til að stækka
Sultartangalína 3 - yfirlitskort.
Sultartangalína 3 liggur frá tengivirki Sultartangastöðvar að tengivirki við Brennimel á Hvalfjarðarströnd, við iðnaðarsvæðið á Grundartanga.
Línan liggur norðan byggðar í Árnessýslu og fylgir Sultartangalínu 1 að mestu að Uxahryggjum. Þaðan liggur hún um Botnsheiði og Kúhallardal og áfram um hálsana á Hvalfjarðarströnd.
Sultartangalína 3 er byggð sem 400 kV lína en rekin á 220 kV spennu.
Mat á umhverfisáhrifum
Skýrsla um mat á umhverfisáhrifum var send Skipulagsstofnun og var fallist á framkvæmdina með skilyrðum í júlí 2002. Sex kærur bárust umhverfisráðuneytinu sem staðfesti úrskurð Skipulagsstofnunar í mars 2003.
Við hönnun verksins var leitast við að taka tillit til allra mótvægisaðgerða sem getið er um í matsskýrslu og fylgigögnum. Línuleiðin var t.d. sveigð frá eldra línustæði á nokkrum stöðum til að minnka sýnileika hennar og koma til móts við sjónarmið sveitarfélaga um landnýtingu. Þannig var línan lögð svo langt frá gamla línustæðinu við Hvítá að hún er vart sjáanleg frá útsýnisstöðum við Gullfoss. Sama má segja um Háafoss í Þjórsárdal þar sem línan sést ekki í bakgrunni fossins.
Smelltu á mynd til að stækka
Í gagnið í ársbyrjun 2006
Framkvæmdir hófust í september 2004 með lagningu vegslóða og í október sama ár hófst jarðvinna og undirstöðugerð. Nýttir voru ökuslóðar meðfram Sultartangalínu 1 en gera þurfti talsverðar lagfæringar á þeim og leggja hliðarslóða að möstrum nýju línunnar. Þegar mest var unnu um 220 manns við línulögnina og létu menn ekki vetrarríki og misjafnt veður á sig fá enda tók aðeins um hálft annað ár að reisa þetta mikla mannvirki og var Sultatangalína 3 spennusett þann 8. febrúar 2006. Samhliða lagningu Sultartangalínu 3 voru einnig gerðar breytingar á Brennimelslínu 1.
Frágangur og verklok
Huga þarf að lagfæringum á nokkrum verkþáttum í kjölfar umhverfisúttektar ásamt lagfæringum á slóðum á Botnsheiði o.fl. Einnig er áformað að herða upp stög og gera heildarúttekt á dempurum.
Í stuttu máli
- Sultartangalína 3 er um 119 km löng með 345 möstrum og nýr hluti Brennimelslínu 1 er um 8 km langur með 29 möstrum.
- Línan liggur um sveitarfélögin Bláskógabyggð, Borgarfjarðarsveit, Grímsnes- og Grafningshrepp, Hrunamannahrepp, Hvalfjarðarstrandarhrepp, Skeiða- og Gnúpverjahrepp, Skilmannahrepp og Skorradalshrepp.
- Hæð mastra er á bilinu 20-27 m, þverslár eru um 26 m langar og meðalhaf á línunni er 344 m.
- Heildarkostnaður, með aðliggjandi tengivirkjum, var rúmir 6 milljarðar króna.
Í Umhverfisúttekt
Umhverfisúttekt á framkvæmd verksins fór fram í tveimur áföngum, haustið 2006 og 2007, og lá skýrsla um málið fyrir í október 2008.
Þátttakendur í úttektinni voru fulltrúar sveitarfélaga, sem línan liggur um, eftirlitsaðilar með framkvæmdinni og fulltrúar Umhverfisstofnunar.
- Almennt voru gerðar mjög litlar athugasemdir við frágang slóða og plana, aðeins talin þörf á að laga hjólför og úrrennsli og bera áburð á svæðið.
Sultartangalína 3 – Umhverfisúttekt Landsnets