Landsnet :: Framkvæmdir :: Verkefni :: Þorlákshafnarlínur
Tengiliður
Árni Jón Elíasson
Verkefnisstjóri 
arnije@landsnet.is
S: 563 9350

Þorlákshafnarlínur 2 og 3 - flutningsvirki fyrir orkufrekan iðnað


Smelltu á mynd til að stækka

Yfirlit yfir línuleiðir og valkosti

Landsnet vinnur að undirbúningi tveggja 220 kV háspennulína frá Hellisheiði að væntanlegu iðnaðarsvæði við Þorlákshöfn.

Meginforsendur Landsnets fyrir framkvæmdinni eru fyrirætlanir um uppbyggingu orkufreks iðnaðar við Þorlákshöfn.

Til að uppfylla afhendingaröryggi eru fyrirhugað að leggja tvær línur. Önnur línan yrði lögð frá tengivirki við Kolviðarhól og hin frá fyrirhuguðu tengivirki á Hellisheiði.

Mat á umhverfisáhrifum

Lagðir eru fram tveir valkostir að legu línunnar frá tengivirki á Hellisheiði og þrír valkostir að legu línu frá tengivirki við Kolviðarhól.

Matsáætlun fyrir verkefnið hefur fengið staðfestingu Skipulagsstofnunar og gert er ráð fyrir að ljúka vinnu við mat á umhverfisáhrifum vegna verkefnisins á árinu 2009. EFLA verkfræðistofa verkstýrir matsvinnunni fyrir hönd Landsnets.

Þorlákshafnarlína 2 og 3 – TillagaÞorlákshafnarlína 2 og 3 – DrögKort

Í stuttu máli

  • Þorlákshafnarlína 2 verður 24 km löng og Þorlákshafnarlína 3 verður um 24-26 km löng.

  • Fyrirhugaðar háspennulínur liggja alfarið innan Sveitarfélagsins Ölfuss.
Smelltu á mynd til að stækka

Þrengslin, séð að Lambafelli.




 

  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410