Framkvæmdum við tengivirki í Fljótsdal er að heita má lokið og í maí 2009 er áætlað að gefið verði út lokaviðtökuvottorð. Þá er fyrirhugað að tengivirkið á Bessastöðum verði tekið úr notkun og fjarlægt.
Hryggstekkur – tengivirki
Launaflsbúnaður í tengivirki á Hryggstekk hefur ekki virkað eins og ráð var fyrir gert en unnið er að úrbótum.
Byggt var skýli yfir hluta búnaðarins á árinu 2008 og er gert ráð fyrir að verkinu ljúki á árinu 2009.
Ljósleiðari milli Akureyrar og Fljótsdals
Áformað er að leggja ljósleiðara frá flugvellinum á Akureyri að tengivirki á Rangárvöllum. Jafnframt eru áform um að setja ljósleiðara í jarðvír Kröflulínu 2, niður Teigsbjargið að tengivirkinu í Fljótsdal.
Þá er gert ráð fyrir að vinna að landbótum og lagfæringum á nokkrum stöðum meðfram ljósleiðaranum.