Vinnuferli vegna framkvæmda
Leyfi ráðherra þarf ef reisa á línur sem flytja raforku á 66 kV spennu eða hærri.
Í reglugerð með raforkulögunum segir að umsókn um leyfi til að byggja flutningsvirki skuli fylgja þarfagreining vegna viðkomandi virkis, hagkvæmnisútreikningar og greining á áhrifum framkvæmdarinnar á flutningskerfið.
Verkferlar
Þegar ráðast á í nýjar framkvæmdir fer af stað skilgreint vinnuferli. Til að hægt sé að meta hagkvæmni umræddrar framkvæmdar þurfa að liggja fyrir niðurstöður ýmissa athugana, þar á meðal á framkvæmdakostnaði, framkvæmdatíma og umhverfislegum áhrifum.
Verkferli fyrir hverja framkvæmd er hægt að skilgreina á eftirfarandi hátt:
- Þarfagreining og rannsóknir.
- Frumhönnun og frumkostnaðaráætlun.
- Umhverfismat.
- Verkhönnun.
- Hagkvæmnismat og ákvörðun um framkvæmd.
- Útboðshönnun og útboð framkvæmdar.
- Framkvæmd hafin.
Ákvarðanir um frekari uppbyggingu flutningskerfisins taka m.a. mið af:
- Orkuspá - hversu hratt eykst orkunotkun.
- Kostnaði flutningskerfisins vegna orku sem ekki er afhent.
- Áhrifum flöskuhálsa á raforkumarkaðinn og ráðast meðal annars af staðsetningu virkjunarkosta og staðsetningu stórnotenda.
Óæskileg áhrif lágmörkuð
Það er stefna Landsnets að lágmarka óæskileg áhrif starfseminnar á umhverfið og hefur fyrirtækið markað sér sérstaka
umhverfisstefnu vegna framkvæmda; til að stuðla að því að umhverfisröskun á byggingartíma verði í lágmarki og frágangur við verklok til fyrirmyndar.