Ekkert fyrirtæki hér á landi er með sambærilega starfsemi og Landsnet. Vegna þessa hefur Landsnet átt í samstarfi við erlend flutningsfyrirtæki um samanburðargreiningu á starfseminni.
Landsnet hefur einnig stofnað til nýsköpunarverkefna með erlendum flutningsfyrirtækjum og ráðgjöfum sem miða að því að leita hagkvæmra lausna í nýframkvæmdum og rekstri.
Landsnet er í góðum tengslum við sambærileg raforkuflutningsfyrirtæki annars staðar á Norðurlöndum.
Danmörk FinnlandNoregurSvíþjóð

ITOMS er samstarf yfir 20 flutningsfyrirtækja um samanburðargreiningu reksturs og viðhalds. Landsnet, og forveri þess, hafa tekið þátt í þessari greiningu um 13 ára skeið og hefur það gjörbreytt viðhaldsmálum og aukið hagræðingu. Miðað við síðustu greiningu er kostnaðarstig Landsnets með því lægsta í samanburðarhópnum.

CIGRE eru alheimssamtök orkuiðnaðarins, framleiðenda búnaðar, háskóla og sérfræðinga á orkusviði í víðustu merkingu. Samtökin hafa innan sinna vébanda umfangsmikla starfsemi, öfluga vinnuhópa og halda umfangsmiklar ráðstefnur árlega víða um heim.
Svæðissamtök CIGRE voru stofnuð fyrir nokkrum árum til að fá markvissari umræðu um málefni sem eru í deiglunni innan svæðanna. Norðurlandaþjóðirnar og Eystrasaltslöndin stofnuðu í kjölfarið NRCC (Nordic Region Cigre og Comittee) og var Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, kosinn formaður samtakanna til tveggja ára á fundi NRCC í maí 2008.

Landsnet tekur þátt í lykiltölugreiningu á starfsemi stjórnstöðva. TSO -Transmission System Operator, er alþjóðlegt verkefni með þátttakendum frá 21 stjórnstöð víða í heiminum.
Þessar stjórnstöðvar starfa í mismunandi umhverfi og eru sumar sjálfstæðar stjórnstöðvar en aðrar í eigu flutningsfyrirtækja. Sé tekið mið af síðustu samanburðargreiningu er Landsnet í fremstu röð á þessum vettvangi.