Smelltu á mynd til að stækka
Skipulag neyðarstjórnar Landsnets.
Afhendingaröryggi
Raforkukerfi landsins er lífæð og grundvöllur allrar starfsemi samfélagsins. Með auknum kröfum um truflunarlausa afhendingu á raforku er nauðsynlegt að starfrækja öfluga neyðarstjórn sem getur brugðist við ef alvarleg vá steðjar að raforkukerfinu.
Neyðarstjórn Landsnets byggir á víðtækri þekkingu og mikilli reynslu. Mikilvægur liður í skipulagi hennar er traust samstarf við raforkuframleiðendur, raforkudreifendur og stóra orkunotendur.
Neyðarstjórn Landsnets (NLN)
Neyðarstjórn Landsnets (NLN) stýrir viðbrögðum fyrirtækisins þegar vá ber að höndum. Hún setur þau viðmið sem fyrirtækið hefur til hliðsjónar í viðleitni sinni til að fyrirbyggja og draga úr afleiðingum óhappa.
Neyðarstjórnin er skipuð æðstu stjórnendum daglegs reksturs Landsnets og er forstjóri fyrirtækisins jafnframt formaður neyðarstjórnarinnar.
Forgangsverkefni neyðarstjórnar er að koma í veg fyrir manntjón, tjón á mannvirkjum, umhverfi og skerðingu á orkuafhendingu. Neyðarstjórn ber ábyrgð á gerð viðbragðsáætlana, þjálfun, endurskoðun og samræmingu viðbragða í vá. Hún starfar náið með NSR, Neyðarsamstarfi raforkukerfisins, og neyðarstjórnum annarra fyrirtækja innan raforkugeirans.
Neyðarstjórn er í umfangsmiklu samstarfi um neyðarviðbrögð við önnur Norðurlönd á vettvangi NordBER (Nordisk el-berednings forum).
Fulltrúar í Neyðarstjórn Landsnets
Neyðarstjórn NLN |
|
| Þórður Guðmundsson |
Form. NLN |
| Guðmundur I. Ásmundsson |
Varaf. NLN |
| Ómar Imsland |
Netrekstur |
| Guðlaugur Sigurgeirsson |
Upplsvið |
| Nils Gustavsson |
Kerfisstjórn |
Vettvangsstjórar NLN |
|
| Aðalsteinn Guðmannsson |
Netrekstur |
| Atli Björnsson |
Netrekstur |
| Helgi B. Þorvaldsson |
Netrekstur |
| Sigurður Sigurðsson |
Netrekstur |
| Árni Stefánsson |
Eignarhald |
| Ásgeir Sigtryggsson |
Kerfisbakvakt |
| Þórhallur I. Hrafnsson |
Kerfisbakvakt |
| Páll Pálsson |
Kerfisbakvakt |
Umsjónarmaður Neyðarstjórnar |
|
| Lúðvík B. Ögmundsson |
Öryggisstjóri |
Neyðarsamstarf raforkukerfisins (NSR)
Raforkukerfið er lífæð samfélagsins. Auknar kröfur um örugga orkuafhendingu kalla á víðtækt samstarf innan raforkugeirans. Þegar alvarlega vá ber að höndum er mikilvægt að fyrirtækin vinni vel saman, að viðbragðsáætlanir séu vel undirbúnar og samhæfðar og að fyrir liggi upplýsingar um hvar sérfræðiþekkingu, mannauð og búnað er að finna. Að frumkvæði Landsnets var Neyðarsamstarf raforkukerfisins, NSR, stofnað en það er samstarfsvettvangur raforkuframleiðenda, Landsnets, dreifiaðila, stórnotenda og opinberra aðila.
Heimasíða NSR Mynd af starfsemi NSR