Landsnet :: Landsnet :: Öryggi og vinnuumhverfi :: Öryggisstefna(ÖHU)
 
Smelltu á mynd til að stækka

Öryggisstefna Landsnets er höfð að leiðarljósi í öllum verkefnum.

Öryggisstefna (ÖHU)

Stefna Landsnets í persónuöryggis-, heilsu- og vinnuumhverfismálum (ÖHU) er í senn einföld og skýr og byggir á þeim gildum sem Landsnet hefur tileinkað sér en þau eru:

  • Áreiðanleiki
  • Framsækni
  • Hagsýni
  • Virðing

Stefna Landsnets

  • Að starfsfólk Landsnets og aðilar sem starfa í verkefnum á vegum Landsnets ljúki sérhverjum vinnudegi á öruggan hátt.
  • Að stuðla að öruggu og heilsusamlegu starfsumhverfi þar sem virðing er borin fyrir einstaklingum og starfi þeirra.
  • Að stuðla að aukinni öryggis- og heilbrigðisvitund á meðal starfsfólks og þjónustuaðila Landsnets. Lögð skal áhersla á öryggi – ekki síður en hagsýni og hæfni í starfi.
  • Að Landsnet sé traust og áreiðanlegt fyrirtæki sem stuðlar að jákvæðum framförum
    gagnvart samfélaginu í öryggis- og heilbrigðismálum.
  • Að Landsnet sé framsækið fyrirtæki sem sífellt leitar að snjöllum, einföldum og hagkvæmum leiðum sem stuðla að auknum árangri á sviði öryggis- og heilbrigðismála þannig að Landsnet verði fremst í flokki íslenskra fyrirtækja. 
     
Smelltu á mynd til að stækka

Það er stefna Landsnets að efla öryggisvitund starfsmanna.

  Stefnunni er fylgt með eftirfarandi leiðum

  • Með því að kynna stefnu og vinnufyrirkomulag fyrir öllu starfsfólki þar sem markviss fræðsla og þjálfun starfsfólks eru frumforsenda öryggis vinnuumhverfis.
  • Með skilvirkum samskiptum,gerð áhættugreininga og fylgni við lög og reglur er hægt að lágmarka áhættu,tjón og mannlegan sársauka.
  • Með ítarlegum slysarannsóknum sem miða að því aðfinna orsök óhapps eða slyss getur fyrirtækið lært og gert nauðsynlegar ráðstafanir til að minnka áhættu.
  • Reynsla,þekking og fagmennska skal liggja til grundvallar viðbragðsáætlunum og réttum viðbrögðum
    ef óhapp ber að höndum.
  • Öryggi er ekki einkamál og fyrirtækið mun leitast við að taka þátt í samstarfi um öryggismál á víðum grundvelli bæði innanland og erlendis. Sérstaklega skal reynt að miðla upplýsingum opinberlega um leiðir og aðferðafræði sem ber árangur.
  • Öryggisstaðallinn OHSAS 18001 er liður í að tryggja öruggt vinnulag sem lýtur að öryggismálum.
    Grunnhugmynd staðalsins er gerð áhættumata í starseminni og að framkvæma reglubundinna endurskoðun
    öryggismála út frá reynslu og raunveruleika starfsfólks.
  •  Stefna Landsnets í öryggi, heilsu og vinnuumhverfis-málum verður höfð að leiðarljósi í öllum samstarfs- verkefnum sem unnin eru undir forystu Landsnets.Þær kröfur verða gerðar til samstarfsaðila að þeir vinni markvisst í öryggismálum sínum og Landsnet verður tilbúið að miðla af reynslu sinni af öryggi á vinnustað.
  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410