Hver og einn er ábyrgur fyrir eigin öryggi. Kröfur um ábyrgð eru þó mismiklar og fara eftir stöðu manna. Skipta má ábyrgð öryggismála í þrjá flokka: ábyrgð atvinnurekanda, verkstjóra og starfsmanna. Lög nr. 46/1988 og tengdar reglugerðir kveða á um skiptingu ábyrgðar. Enginn er undanskilinn ábyrgð. Hér á síðunni er leitast við að túlka ábyrgðarskiptinguna sem lögin kveða á um á einfaldan og gagnsæjan hátt.
Meðfylgjandi túlkun Landsnets á lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum gildir bæði fyrir starfsmenn Landsnets sem og alla þá sem starfa fyrir Landsnet.

Atvinnurekandi
Það er á ábyrgð atvinnurekanda að sjá til þess að fyrir hendi sé skipulag sem tryggir sem best aðbúnað, hollustuhætti og öryggi alls starfsfólks fyrirtækisins. Slíkt skipulag þarf að taka tillit til áhættuþátta í starfsemi fyrirtækisins, krafna opinberra aðila og sérkrafna Landsnets.
Verkstjóri
Það er á ábyrgð stjórnenda, verkstjóra, öryggisvarða og öryggistrúnaðarmanna að framfylgja og hafa eftirlit með að farið sé eftir því skipulagi sem fyrirtækið setur á laggirnar til að tryggja sem bestan aðbúnað, hollustuhætti og öryggi starfsmanna. Einnig bera þessir sömu aðilar ábyrgð á því að koma með ábendingar um úrbætur á skipulagi sem snýr að bættum aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi starfsmanna.
Starfsmaður
Það er á ábyrgð starfsfólks að virða lög og fara eftir því skipulagi og þeim fyrirmælum sem í gildi eru hverju sinni. Einnig bera starfsmenn ábyrgð á því að koma með ábendingar um úrbætur á skipulagi, fyrirmælum eða starfsaðstöðu til að bæta öryggis- og vinnuumhverfismál geti þeir sjálfir ekki bætt þar úr.