Landsnet :: Landsnet :: Öryggi og vinnuumhverfi :: Persónuöryggi :: Handbók um öryggisfatnað

Öryggisfatnaður - handbók

Landsneti er umhugað um öryggi og heilsu starfsmanna sinna sem og þeirra fjölmörgu verktaka sem fyrir Landsnet starfa. Hjá fyrirtækinu eru því í gildi reglur sem stuðla að öruggu og heilsusamlegu starfsumhverfi þar sem virðing er borin fyrir einstaklingum og starfi þeirra. Eitt af því eru persónuvarnir og sýnileikafatnaður.

ÖHU (Öryggi, Heilsa og vinnuUmhverfi) er hugtak sem allir ættu að tileinka sér. Starfsmenn eru sérstaklega beðnir að kynna sér gildandi reglur, tileinka sér þær og virða, því saman náum við árangri í leik og starfi. Verktakar, birgjar og gestir eiga að hlíta sömu reglum og starfsmenn Landsnets og er það á ábyrgð starfsmanna að kynna þær öryggiskröfur sem Landsnet hefur sett sér.

Landsnet hvetur þig til að kynna þér lög, reglugerðir og leiðbeiningar um öryggismál. Flestar upplýsingar um persónuöryggismál er að finna hér.

Allar persónuvarnir eru liður í því að efla öryggisbrag Landsnets. Það er á valdi hvers og eins að stuðla að eflingu öryggisbragsins til að framfylgja stefnu Landsnets og ná fram settum markmiðum. 

Tilgangur og markmið handbókarinnar

Handbókinni er ætlað að vera hentugt upplýsingarit og leiðbeinandi fyrir þá sem annast innkaup á öryggisfatnaði fyrir starfsmenn. Handbókinni er einnig ætlað að tryggja að farið sé eftir gildandi reglum um notkun vinnufatnaðar hjá Landsneti.

Öryggisfatnaður Landsnets - Handbók 2010

  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410