Umgengni við flutningslínur
Helgunarsvæði háspennulína
Smelltu á mynd til að stækka
Því hærri sem spennan er á línunni því breiðara er helgunarsvæðið.
Neytendastofa hefur eftirlit með því að íslensk lög um öryggi raforkuvirkja sé framfylgt. Samkvæmt reglugerð ber að skilgreina lágmarksfjarlægðir háspennulína til annarra mannvirkja. Reglugerðin vísar til íslenskra staðla sem ákvarða svokallað helgunarsvæði meðfram háspennulínum.
Helgunarsvæði er einnig nefnt byggingarbannsvæði. Þetta er svæði meðfram háspennulínum og háspennustrengjum þar sem óheimilt er að reisa mannvirki. Svæðið er með öðrum orðum "helgað" háspennulínunum.
Helgunarsvæði er misbreitt en almennt gildir að því hærri sem spennan er á rafkerfinu því breiðara er helgunarsvæði línunnar eða byggingarbannsvæðið. Breidd helgunarsvæðis þarf að reikna út í hverju tilviki fyrir sig og þá er það gert með tilliti til ýmissa kennistærða línunnar, svo sem hæð mastra og lengd milli þeirra, álagi á línunni o.s.frv.
Fjarlægð jarðstrengja
Smelltu á mynd til að stækka
Nauðsynlegt er að ganga úr skugga um legu jarðstrengja áður en framkvæmdir hefjast.
Reglur um fjarlægðarmörk fyrir háspennustrengi eru ekki jafnskýrar og þær sem gilda um háspennulínur. Engu að síður er nauðsynlegt að umgangast strengina með aðgát og varast að grafa nálægt þeim. Algengt viðmið er að hvorki megi grafa né byggja í eins og hálfs metra fjarlægð,sínu hvorum megin við ysta streng en það getur þó farið eftir aðstæðum áhverjum stað.
Mjög mikilvægt er að fara að með gát nálægt jarðstrengjumtil að fyrirbyggja slys og til að tryggja að ekki verði rekstrartruflanir í flutningskerfinu. Áður en farið er í framkvæmdir er því mikilvægt að gengið sé úr skugga um legu jarðstrengja.
Lega háspennustrengja utan þéttbýlis er merkt með hælum sem á eru viðvörunarmerki. Í jörðu eru lagðir viðvörunarborðar sem gefa til kynna hættulega nálægð við strengi.Ef lega háspennustrengs er óljós skal hafa samband við Landsnet eða viðkomandi dreififyrirtæki sem getur staðsett strengi nákvæmlega.