Beint í efni síðu
Leita
Á forsíðu
Starfsmenn
Hugtök
Veftré
Landsnet
Viðskiptavefur
English
Raforkukerfið
Framkvæmdir
Umhverfi og samfélag
Línur og strengir
Landsnet
Stefna Landsnets
Hlutverk og gildi
Siðareglur Landsnets
Starfskjarastefna
Stjórnun og skipurit
Mannauður
Erlend samskipti
Öryggi og vinnuumhverfi
Gæðamál
Upplýsingatorg
Bein lína
Viðskiptavinir
Lausar stöður
Landsnet
::
Landsnet
::
Stefna Landsnets
Í hnotskurn
Meginstefnumið Landsnets eru arðsamur og skilvirkur rekstur, virk samkeppni, skilvirk stýring raforkukerfisins og hagkvæm uppbygging raforkuflutningskerfisins.
Smelltu á mynd til að stækka
Landsneti ber að hafa í huga þjóðfélagslegan ávinning við uppbyggingu flutningskerfisins.
Hlutverk Landsnets og framtíðarsýn endurspeglast í eftirfarandi stefnumiðum
Arðsamur og skilvirkur rekstur.
Landsnet hyggst ná viðunandi arðsemi og fjárhagslegum styrk til að efla starfsemina og mæta kröfum eigenda. Fyrirtækið hefur einsett sér að auka hagkvæmni og skilvirkni og nýta þau viðskiptatækifæri sem lög leyfa.
Virk samkeppni í viðskiptum með rafmagn
. Landsnet mun hafa frumkvæði að því að mótaðar verði reglur og verklag á raforkumarkaði sem skapa skilyrði fyrir virka samkeppni. Með því verður markaðsaðilum gert kleift að stunda viðskipti án hindrana með nýsköpun og bestu lausnum og fest er í sessi verklag sem tryggir jafnræði, trúnað og hlutleysi.
Sterk samfélagsvitund.
Við uppbyggingu flutningskerfisins ber að hafa í huga þjóðhagslegan ávinning og að óæskileg áhrif starfseminnar á umhverfið séu lágmörkuð. Landsnet stendur við skuldbindingar sínar og styður verkefni sem tengjast starfsemi fyrirtækisins og eru til þess fallin að styrkja samfélagið.
Skilvirk stýring raforkukerfisins.
Landsnet tryggir viðskiptavinum sínum fullnægjandi gæði við afhendingu raforku og viðheldur jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar á hverjum tíma. Landsnet tryggir jafnframt rétt uppgjör orkuflæðis.
Hagkvæm uppbygging flutningskerfisins.
Landsnet byggir upp og styrkir flutningskerfið og viðheldur hæfni þess til lengri tíma. Starfshættir eru skipulagðir en sveigjanlegir. Framsækinn fyrirtækjabragur og eftirsóknarverður vinnustaður mynda öfluga liðsheild. Fyrirtækið beitir skipulögðum starfsháttum og vinnur að stöðugum umbótum. Markviss þjálfun og þekkingarefling starfsmanna gera Landsnet að eftirsóknarverðum vinnustað.
Landsnet
Gylfaflöt 9
112 Reykjavík
Sími 563 9300
Fax 563 9309
landsnet@landsnet.is
Kennitala 580804-2410