Starfskjarastefna Landsnets hf.
Samþykkt af stjórn LN og lögð fyrir aðalfund LN 2010 og samþykkt þar.
1. gr. Markmið
- Markmið Landsnets hf. er að laða að og halda í hæft starfsfólk sem hentar hlutverki og starfsemi félagsins eins og hún er skilgreind í raforkulögum 65/2003. Það er einnig markmið félagsins með stefnunni að veita hluthöfum og öðrum er hagsmuna hafa að gæta upplýsingar um starfskjör stjórnenda og starfsmanna félagsins.
2. gr. Starfskjör stjórnar
- Stjórnarmönnum Landsnets hf. skulu greidd laun skv. ákvörðun aðalfundar félagsins ár hvert.
3. gr. Starfskjör stjórnenda
- Stjórn gerir skriflegan ráðningarsamning við forstjóra Landsnets hf. og semur um starfskjör við hann skv. starfskjarastefnu þessari. Auk þess semur stjórn um starfskjör og gerir ráðningarsamning við aðstoðarforstjóra og framkvæmdastjóra fjármála.
- Forstjóri gerir skriflega ráðningarsamninga við aðra stjórnendur félagsins og semur um kjör þeirra skv. starfskjarastefnu þessari og kjarasamningum.
- Við ákvörðun starfskjara skulu stjórn og forstjóri gæta þess að starfskjör stjórnenda taki mið af samræmingu starfskjara innan félagsins.
4. gr. Árangurstengdar greiðslur
- Félagið getur veitt stjórnendum og starfsmönnum árangurstengda kaupauka sem tengjast árangri félagsins í heild og/eða árangri einstakra deilda eða starfsmanna. Slík breytileg laun, önnur en föst laun, skulu vera í eðlilegu hlutfalli við laun viðkomandi og skulu ekki vera hærri en sem nemur einum mánaðarlaunum á ári.
- Félagið áskilur sér rétt til að krefjast endurgreiðslur breytilegra launa ef í ljós kemur að árangursmarkmiðum tengdum greiðslunum var náð með misgjörðum eða misbeitingu.
5. gr. Ýmis starfskjör
- Heimilt er að veita stjórnendum og starfsmönnum afnot af búnaði sem nýtist og tengist starfi viðkomandi, s.s. farsíma, fartölvu og nettengingu á heimili vegna vinnu.
- Stjórn getur veitt stjórnendum bifreiðar til afnota í starfi.
- Félagið greiðir ekki viðbótargreiðslur, þ.e. umfram skyldur félagsins skv. lögum og kjarasamningum, vegna séreignarlífeyrissparnaðar stjórnenda né starfsmanna nema með sérstakri heimild stjórnar.
6. gr. Starfslok
- Það er stefna félagsins að gera ekki sérstaka starfslokasamninga við stjórnendur né starfsmenn félagsins umfram skyldur félagsins skv. lögum og kjarasamningum.
- Forstjóra félagsins er þó heimilt að gera samninga um starfslok við stjórnendur og starfsmenn þjóni það hagsmunum félagsins. Slíka samninga skal ávalt bera undir stjórn til samþykktar.
- Gert er ráð fyrir að stjórn geti samþykkt ákvæði í ráðningarsamningum við stjórnendur um allt að 12 mánaða uppsagnarfrest.
7. gr. Samþykkt, endurskoðun og upplýsingagjöf
- Stjórn skal veita upplýsingar á aðalfundi félagsins um starfskjör forstjóra félagsins. Veita skal upplýsingar um launakjör, hlunnindi, áunnar eftirlaunagreiðslur og aðrar greiðslur ef um þær er að ræða. Þar skal stjórn jafnframt skýra frá framkvæmd áður samþykktrar starfskjarastefnu.
- Ef breytingar eru gerðar á starfskjarastefnu þessari skal hún þá að nýju borin fram til samþykktar eða synjunar á aðalfundi félagsins.
- Starfskjarastefnan er leiðbeinandi fyrir stjórn félagsins.
- Starfskjarastefnuna skal kynna fyrir starfsfólki Landsnets og birta á heimasíðu félagsins.
- Starfskjarastefna Landsnets hf. er sett skv. lögum nr. 2/1995 um hlutafélög.