Framkvæmdastjórn Landsnets er skipuð forstjóra, aðstoðarforstjóra og framkvæmdastjóra fjármála.
Framkvæmdastjórn heldur fundi að jafnaði tvisvar í viku. Á þeim fundum tekur framkvæmdastjórn fyrir erindi frá millistjórnendum til umræðu og ákvörðunar. Framkvæmdastjórn heldur einnig reglubundna kynningarfundi með öllum millistjórnendum einu sinni í mánuði.
Í framkvæmdastjórn Landsnets sitja eftirtaldir stjórnendur fyrirtækisins:
Þórður Guðmundsson
forstjóri
Þórður er fæddur 1949. Hann stundaði nám í Iðnskólanum í Reykjavík, Tækniskóla Íslands, Háskóla Íslands og Tækniháskólanum í Þrándheimi, en þar lauk hann námi 1978.
Þórður hóf störf hjá Landsvirkjun 1978, starfaði sem verkfræðingur í rekstrardeild fyrstu árin, síðan sem yfirverkfræðingur þar til hann var ráðinn rekstrarstjóri 1992. Við skipulagsbreytingar 1997 tók hann við stöðu framkvæmdastjóra flutningssviðs og gegndi þeirri stöðu þar til hann var ráðinn forstjóri Landsnets frá 1. janúar 2005.
Guðlaug Sigurðardóttir
framkvæmdastjóri fjármála
Guðlaug Sigurðardóttur er fædd í Reykjavík 1966. Hún lauk prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1991.
Guðlaug starfaði hjá KPMG Endurskoðun að námi loknu til ársins 1993 er hún réð sig til starfa hjá Meitlinum hf. við skrifstofu- og fjármálastjórn. Þá var Guðlaug í sérverkefnum hjá Vinnslustöðinni frá árinu 1996 og síðar fjármálastjóri. Guðlaug réð sig til Sveitarfélagsins Árborgar árið 1999 sem fjármálastjóri en tók síðan við starfi framkvæmdastjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs í byrjun árs 2002. Guðlaug hóf störf sem framkvæmdastjóri fjármála hjá Landsneti 1. mars 2008.
Guðmundur Ingi Ásmundsson
aðstoðarforstjóri
Guðmundur Ingi er fæddur í Reykjavík 1955. Hann lauk prófi í rafmagnsverkfræði 1980 frá Háskóla Íslands og meistaraprófi í raforkuverkfræði 1982 frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU).
Guðmundur Ingi réðst til Landsvirkjunar árið 1982 og starfaði sem verkfræðingur á rekstrardeild, síðar yfirverkfræðingur og deildarstjóri kerfisdeildar frá árinu 1993. Kerfisstjóri Landsnets frá stofnun þess 1. janúar 2005. Framkvæmdastjóri kerfisstjórnar frá 1. nóvember 2005. Guðmundur Ingi er aðstoðarforstjóri frá 1. janúar 2008.