Samkvæmt raforkulögum skal stjórn Landsnets vera sjálfstæð gagnvart öðrum fyrirtækjum sem stunda vinnslu, dreifingu eða sölu raforku. Stjórn Landsnets skipa:
Geir A. Gunnlaugsson,
formaður stjórnar
Geir A. Gunnlaugsson stundaði nám í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, lauk M. Sc. prófi í vélaverkfræði frá Tækniháskóla Danmerkur og síðan Ph. D. prófi frá Brown University í Bandaríkjunum. Hann var prófessor í vélaverkfræði við Verkfræðideild Háskóla Íslands á árunum 1975 til 1986. Hann var framkvæmdastjóri Kísilmálmvinnslunnar á Reyðarfirði 1983 – 1987, framkvæmdastjóri Marel 1987 – 1999, framkvæmdastjóri Hæfis og stjórnarformaður Reyðaráls 2000 – 2002 og framkvæmdastjóri Sæplasts/Promens 2003 – 2006. Geir hefur setið í samninganefndum stjórnvalda um orkufrekan iðnað og sat í stjórn Markaðsskrifstofu iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkjunar á árunum 1988 - 1997, þar af stjórnaformaður 1989 – 1997. Geir hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja, bæði innlendra og erlendra, samtaka og stofnana og hefur víðtæka reynslu af rekstri fyrirtækja bæði hérlendis og erlendis.
Agnar Olsen,
stjórnarmaður
Agnar Olsen nam fyrrihluta byggingarverkfræði í Háskóla Íslands en hélt síðan til náms í tækniháskóla Danmerkur og lauk prófi (MSc) þaðan í byggingarverkfræði. Starfaði í eitt ár hjá Landsvirkjun en var næstu fjögur árin á Verkfræðistofu dr. Gunnars Sigurðssonar. Agnar hóf þá aftur störf á Landsvirkjun, fyrst á línudeild fyrirtækisins, síðan yfirverkfræðingur á verkfræðideild og framkvæmdastjóri verkfræði- og framkvæmdasviðs. Síðustu þrjú árin var Agnar skrifstofustjóri á skrifstofu forstjóra uns hann lét af störfum í lok apríl 2011. Agnar hefur setið í ýmsum stjórnum og nefndum á vegum Landsvirkjunar og Samorku.
Svana Helen Björnsdóttir,
stjórnarmaður
Svana Helen Björnsdóttir stundaði nám í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands, en lauk framhaldsnámi í raforkuverkfræði við Technische Universität Darmstadt í Þýskalandi. Hin síðari ár hefur hún aðallega starfað á sviði upplýsingatækni og er nú forstjóri Stika ehf. Hún hefur lokið námi í rekstrarverkfræði frá Háskóla Íslands, er með alþjóðleg starfsréttindi sem vottaður úttektarmaður stjórnkerfa sem byggja á ISO/IEC 27001 og hefur jafnframt setið í ýmsum stjórnum og ráðum bæði hérlendis og erlendis. Svana hefur mikla reynslu af fyrirtækjarekstri, alþjóðlegu samstarfi og útflutningi.
Guðrún stundaði nám í viðskiptafræði í Carleton University í Ottawa Kanada og síðan lá leið hennar í MBA nám í Nyenrode University í Hollandi. Guðrún starfar í dag sem framkvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna en hún hefur mikla reynslu af rekstri og stjórnun fyrirtækja og hefur komið að mörgum flóknum umbreytingarverkefnum. Hún hefur starfað fyrir m.a. Landsvirkjun, Íslandsbanka og BYKO. Guðrún rak um skeið ráðgjafarfyrirtækið Strategíu sem sérhæfði sig í breytingastjórnun með áherslu á framkvæmd umfram áætlanagerð. Guðrún hefur verið virk innan Gæðastjórnunarfélags Íslands en hún var formaður þess um hríð og síðar Stjórnvísi, haldið fjölmarga opinbera fyrirlestra og kennt námskeið um breytngastjórnun á MBA stigi við HÍ.