Landsnet :: Landsnet :: Upplýsingatorg :: Fréttir
   
26.1.2009  AdminJorunn
Bolungarvíkurlína 1 komin í rekstur á ný
Eins og áður hefur komið fram á þessum vettvangi þá hefur 66 kV Bolungarvíkurlína 1, sem liggur frá tengivirkinu í Breiðadal til Bolungarvíkur, verið úr rekstri frá því á laugardag.

Við skoðanir kom í ljós að mikil ísing var á línunni og má líklega kenna því ásamt með samslætti leiðara um að línan fór úr rekstri. Nú hefur ísingin verið barin af leiðurum. Við grandskoðun á línunni hefur komið í ljós að ekki var um eiginlega bilun að ræða.

Var línan sett í rekstur nú síðdegis kl: 15:20.

Eru þá allar línur Landsnets á Vestfjörðum í fullum rekstri á ný.
  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410