Landsnet :: Landsnet :: Upplýsingatorg :: Fréttir
   
25.2.2009  Jórunn Gunnarsdóttir
Bilun á 33 kV Húsavíkurlínu
Í gær varð vart við bilun á 33 kV Húsavíkulínu sem liggur frá Laxárstöð að Húsavík.

Því miður geta komið upp þau atvik þar sem sinna þarf bráðaviðhaldi á flutningslínum með tilheyrandi röskun fyrir raforkunotendur.

Flutningslínur geta laskast vegna veðurs eða hrörnunar án þess að truflun verði á línu og því mikilvægt að upplýsingum um slíkt sé komið til réttra aðila.

Eitt slíkt atvik kom upp í gær þann 24. febrúar þegar tilkynning barst um að eitthvað hefði úr lagi gengið á einni burðarstæðu í 33 kV Húsavíkurlínu.

Húsavíkurlína liggur frá Laxárstöð að Húsavík og sér Húsavík og nágrenni fyrir rafmagni.

Við skoðun á línunni kom í ljós að einangri hafði brotnað og hafði leiðarinn við það fallið niður með burðarstaur en þó án þess að truflun yrði á línunni (sjá meðfylgjandi mynd).

Veðurspá og aðstæður á staðnum voru þess eðlis að ekki þótti verjandi annað en að taka línuna út með mjög skömmum fyrirvara og sinna viðgerð.

Línan var tekin úr rekstri kl: 14:30 og var komin aftur í rekstur aftur kl: 15:00.

Starfsmenn Rarik á Akureyri sáu um viðgerð á línunni. Landsnet kann starfsmönnum Rarik ásamt þeim sem upplýstu um bilun bestu þakkir fyrir góð og skjót viðbrögð.


  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410