Landsnet :: Landsnet :: Upplýsingatorg :: Fréttir
   
29.5.2009  Jórunn Gunnarsdóttir
Strengur að Aflþynnuverksmiðju Becromal í Krossanesi spennusettur
Í gær var í fyrsta sinn sett spenna á 132 kV jarðstreng, sem liggur frá aðveitustöð Landsnets á Rangárvöllum að tengivirki aflþynnuverksmiðju Becromal í Krossanesi. Strengurinn er um 4,5 km að lengd og er sá fyrri af tveimur strengjum sem í framtíðinni munu sjá verksmiðjunni fyrir raforku.

Í verksmiðjunni er verið að ljúka uppsetningu rafbúnaðar og munu prófanir hefjast í byrjun júní. Framleiðsla hefst svo í ágúst n.k. Landsnet býður nýjan viðskiptavin velkominn á netið.
  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410