Í gær 9. febrúar var nýi 132 kV strengurinn milli Nesjavalla og Geitháls tekinn í rekstur og hófst þar með raforkuflutningur um strenginn.
Í gær 9. febrúar var nýi 132 kV strengurinn milli Nesjavalla og Geitháls tekinn í rekstur og hófst þar með raforkuflutningur um strenginn. Hingað til hefur Nesjavallavirkjun tengst höfðuborgarsvæðinu með aðeins einni línu, það er Nesjavallalínu 1 (NE1), að spennistöð við Korpu.
Fram að þessu hefur ekki verið mögulegt að flytja orku frá Nesjavallavirkjun þegar bilun hefur orðið á NE1 en það vandarmál er nú úr sögunni. Nú streymir raforka frá Nesjavöllum um báðar línurnar og þar af flytur NE2 um 70% orkunnar.
Nánari lýsingu á verkinu er að finna
hér