Það hvessti hressilega á Skarðsheiðinni aðfaranótt mánudagsins 25. janúar s.l.
Það hvessti hressilega á Skarðsheiðinni aðfaranótt mánudagsins 25. janúar s.l.
Ný veðurstöð Landsnets á svæðinu gaf til kynna að vindhraði hafi náð rúmum 70 m/s í mestu vindhviðunum. Stöðin stendur í 480 metra hæð yfir sjó, nærri svokölluðum Miðfitjahól. Truflun varð á 132 kV Vatnshamralínu 1 (Brennimelur – Vatnshamrar) þegar mesta vindhviðan gekk yfir því sem næst 45° á línustefnu - en línan hélst í rekstri eftir innsetningu og reyndist ósködduð eftir átökin.
Kort sem sýnir staðsetningu veðurstöðvar og línu