Smelltu á mynd til að stækka
Áróðursmynd úr Harðangursdeilunni
Lagning háspennulína getur verið umdeild eins og dæmin sanna, bæði hér heima og erlendis, og umræðan oft á tíðum öfgakennd. Þá er gjarnan gripið til framsetningar og orðfæris sem er ekki í takt við raunveruleikann og má sjá dæmi um slíkt hér fyrir neðan.
Suðvesturlínur
Annars vegar eru myndir sem birtust í Víkurfréttum í apríl 2007 og sýna túlkun andstæðinga fyrirhugaðra Suðvesturlína á því hvernig sú framkvæmd komi til með að líta út og hins vegar raunveruleikann, eins og blaðið orðar það. Mynd andstæðinganna sýnir kolsvört háspennumöstur með Keilir í bakgrunni og línur á þremur hæðum. Blaðið greinir frá því að tekið hafi verið fram í dreifibréfi sem fór í öll hús á svæðinu með umræddri mynd að það væri „hóflegt og málefnalegt að ætlast til þess að umhverfisraski sé haldið í lágmarki ef til þess kemur að álver rísi í Helguvík“.
Harðangursdeilan í Noregi
Hins vegar eru myndir frá Noregi þar sem hart var tekist á um línulögn yfir Harðangursfjörð, rétt sunnan við Bergen. Þar er náttúrfegurð mikil og birtu andstæðingar línulagnarinnar mjög ýkta mynd af hinni fyrirhugðu línu innst í firðinum. Til samanburðar er þrívíddarmynd sem orkudreifingarfyrirtækið Statnett gerði til að sýna raunverulegt umfang línunnar á þessum stað.“.
Skiptar skoðanir í Danmörku
Í Danmörku eru skiptar skoðanir um fyrirhugaða jarðstrengjastrengjavæðingu og hvort almenningur eigi að taka á sig umtalsverðan kostnaðarauka vegna þeirra áætlana. Sjá grein á upplýsingavef danskra verkfræðinga: Stop milliard-fraas paa at grave elkabler ned
Ni milliarder at spare på at droppe at grave kabler ned