Landsnet :: Línur og strengir :: Umhverfið :: Helgunarsvæði
Helgunarsvæði loftlínu Smelltu á mynd til að stækka

Helgunarsvæði loftlínu

Umhverfis háspennuloftlínur og jarðstrengi þarf að vera svokallað helgunarsvæði af öryggisástæðum og er ekki leyfilegt að byggja varanleg mannvirki á því.

Helgunarsvæði loftlínu

Loftlínur þurfa ákveðið landrými og takmarka aðra nýtingu þess lands. Breidd helgunarsvæðisins fer eftir spennunni á línum. Það er 50-60 m fyrir 220 kV línur og allt upp í 75-90 m fyrir 400 kV línur. Helgunarsvæði eru semsagt ekki af staðlaðri stærð, heldur ákvörðuð í hverju tilviki eftir gerð mannvirkisins og í samræmi við íslenska staðla um loftlínur.

Helgunarsvæði jarðstrengja

Fyrir hvert 220 kV jarðstrengjasett er áætlað að þurfi um 3 m helgunarsvæði, auk þess sem gera þarf ráð fyrir akstursleið meðfram strengnum og svæði fyrir uppgröft.

Helgunarsvæði jarðstrengs Smelltu á mynd til að stækka

Helgunarsvæði jarðstrengs

Ef strengjasettin eru tvö stækkar svæði í 5 m o.s.frv. Þessar tölur eru þó ekki algildar og háðar ýmsum þáttum, t.d. því hvernig strengur er lagður, hvaða spenna er á honum, fjarlægð á milli strengjanna í settinu og hvaða kröfur eru gerðar til aðgengis að strenglögn til viðhalds o.þ.h.

Á helgunarsvæði jarðstrengja má ekki byggja og flestur trjágróður en bannaður því rótarkerfið getur valdið skaða á strengjunum.

Jafnframt þarf landrými undir endastöðvar jarðstrengs þar sem tengivirki og ýmis konar rafbúnaður er staðsettur, auk mögulegra launaflsútjöfnunarstöðva með jöfnu millibili á strengleiðinni þegar um lengri strengi er að ræða.
 

Smelltu á mynd til að stækka Kindur á beit undir háspennulínu Ræktað land á helgunarsvæði loftlína Helgunarsvæði jarðstrengs Tvær 440 kV flutningsrásir Golfvöllur í nágrenni háspennulínu
  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410