Meðalverð
Kostnaður vegna flutnings til almennra nota er að meðaltali um 1 kr. fyrir hverja kWst., að meðtöldum kostnaði við kerfisþjónustu og flutningstap.
Landsnet leggur áherslu á hagkvæmni í rekstri og hefur tekist að halda hækkunum á flutningskostnaði töluvert undir almennum hækkunum á vísitölu neysluverðs.
Til viðbótar hefur verð á kerfisþjónustu lækkað vegna hagkvæmari nýtingar á flutningskerfinu og hagstæðari samninga í innkaupum. Kostnaður vegna flutningstaps hefur hins vegar hækkað hlutfallslega mest vegna hærra innkaupsverðs frá framleiðanda.