Landsnet :: Raforkukerfið :: Flutningsgjaldskrá :: Þróun gjaldskrár

Þróun gjaldskrár

Á línuriti hér til hliðar má sjá að hækkanir á gjaldskrá Landsnets hafa verið töluvert undir verðlagsbreytingum frá stofnun Landsnets og fyrri hluta árs 2008  tók að skilja verulega á milli.

Ljóst er að hagkvæmni í rekstri flutningskerfisins og aukin nýting er að skila umtalsverðum ávinningi til viðskiptavina.  

Þann 1. ágúst 2009 kom til hækkunnar á gjaldskrá Landsnets fyrir flutning rafmagns til dreifiveitna um 10% og gjaldskrá vegna sölu á flutningstöpum um 7%.  Hækkun þessi var  til komin vegna hækkandi verðlags, en frá því síðasta hækkun var gerð þann 1. febrúar 2008 og fram til júnímánaðar 2009 hafði verðlag hækkað um 20,4%, samkvæmt vísitölu neysluverðs.

Aðrir liðir gjaldskrárinnar, s.s gjald fyrir kerfisþjónustu og flutningsgjald til stórnotenda verða óbreyttir.


 

Nánar um meðalverð flutningskostnaðar.

  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410