Stefna Landsnets
Landsnet hefur sett sér ákveðin viðmið sem höfð eru til hliðsjónar þegar tekin er afstaða til þess hvort leggja skuli jarðstreng eða loftlínu.
Viðmið Landsnets eru sem hér segir:
-
66 kV. Jarðstrengslausn er að öðru jöfnu valin við tengingar á 66 kV enda er kostnaður sambærilegur og viðgerðartími ásættanlegur
-
132 kV. Jarðstrengslausnir eru skoðaðar á styttri vegalengdum og þar sem um tengingu við einstaka viðskiptavini er að ræða.
-
220 kV. Jarðstengslausn er ekki tæknilega eða kostnaðarlega fýsileg á þessu spennustigi. Hún kemur eingöngu til athugunar á styttri köflum og við mjög sérstakar aðstæður, t.d. ef um er að ræða einstæðar umhverfisaðstæður eða þétta íbúðabyggð.
-
Almennt er hlutfall jarðstrengja í flutningskerfi Landsnets svipað því sem gerist í öðrum Evrópulöndum.