Áætlanagerð
Smelltu á mynd til að stækka
Þróun orkunotkunar 2005-2008 auk framtíðarspár um orkunotkun árin 2009-2014.
Gerð kerfisáætlunar er meðal þeirra leiða sem Landsnet nýtir til að viðhalda og tryggja örugga og hagkvæma raforkuafhendingu til viðskiptavina sinna.
Niðurstöður og tölulegar upplýsingar í kerfisáætluninni byggja á Raforkuspá og ber því að taka með fyrirvara um þá óvissu sem bundin er við þróun, framleiðslu og álag í flutningskerfinu til langs tíma.
Með útgáfu kerfisáætlunar upplýsir Landsnet viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila um þróun flutningskerfisins og markaðar í stórum dráttum. Áætlunin er ekki bindandi heldur er hún tæki Landsnets til að kynna þau verkefni sem fyrirtækið telur mikilvæg til að stuðla að öflugu raforkuflutningskerfi til framtíðar.
Kerfisáætlun 2010-2014
Forsendur áætlanagerðar
Kerfisáætlun gengur út frá hámarksaflnotkun landsins fremur en heildarorkunotkun þar sem orkunotkun dreifist ekki jafnt yfir daga, vikur eða mánuði. Álagsþróun er áætluð út frá raforkuspá sem unnin er af raforkuhópi Orkuspárnefndar, gildandi stóriðjusamningum á tímabilinu sem áætlunin nær yfir, auk sérstakra áherslna Landsnets.