Afl- og orkujöfnuður
Landsnet gefur reglulega út skýrslur um allt afl og alla orku sem flutt er um flutningskerfi Landsnets þar sem spáð er fyrir um afl- og orkujöfnuð Íslands næstu árin.
Ólíkt orkukerfum margra annarra landa er flutningskerfi raforku á Íslandi einangrað kerfi og ekki um beinan inn- eða útflutning á orku að ræða til annarra landa. Í stað þess að skoða orkujöfnuð við önnur lönd er orkujöfnuður einstakra landsvæða skoðaður sérstaklega í þessum skýrslum.
