Álagsþróun

Þróun stóriðjuálags 2009-2013 Smelltu á mynd til að stækka

Þróun stóriðjuálags 2009-2013.

Árið 2009 var heildarorkumagnið, sem fór inn á kerfi Landsnets, 16.260 GWh. Þar af fóru 2.980 GWh til almennrar notkunar en 12.926 GWh til stórnotenda. 

Tap í flutningskerfinu nam 355 GWh árið 2009.

Viðskiptavinir, sem tengjast kerfi Landsnets vegna almennrar notkunar, eru: RARIK, Orkuveita Reykjavíkur, Hitaveita Suðurnesja, Norðurorka og Orkubú Vestfjarða.

Árið 2009 voru eftirtaldir stórnotendur í viðskiptum við Landsnet: Alcan á Íslandi, Íslenska járnblendifélagið, Norðurál,  Alcoa Fjarðaál og Becromal Iceland. 

Spá um þróun raforkunotkunar

Niðurstöður Kerfisáætlunar Landsnets 2009-2013 byggja á áætlaðri þróun í raforkunotkun. Samkvæmt endurreiknaðri raforkuspá mun almennt álag aukast um 2,2% á ári. Gert er ráð fyrir að stóriðjuálag aukist eins og sjá má á meðfylgjandi töflu. Í upphafi tímabilsins er áætlað að aflþynnuverksmiðja Becromal haldi áfram uppkeyrslu frá 20 MW upp í hámarksálag sem er 75 MW. Gert er ráð fyrir að gagnaver Verne hefji rekstur í Reykjanesbæ í apríl 2009 og að afhending á 25 MW til þess komi inn jafnt og þétt á tveimur árum.

Í september 2011 er áætlað að byrjað verði að keyra upp 1. áfanga álvers Norðuráls í Helguvík. Samið hefur verið um 2. áfanga álvers Norðuráls í Helguvík en tímasetning þess áfanga verður ekki staðfest fyrr en tímaáætlanir vegna orkuöflunar liggja fyrir. Þó er gert ráð fyrir að uppkeyrsla 2. áfanga hefjist eigi síðar en árið 2015. Árið 2013 er þannig áætluð hámarksúttekt úr flutningskerfi Landsnets 2.060 MW og er áætluð heildarraforkunotkun ársins 15,6 TWh.

  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410