Landsnet :: Raforkukerfið :: Kerfisstjórnun :: Hlutverk kerfisstjórnar
Í hnotskurn

Landsnet ber ábyrgð á rekstri og stýringu raforkukerfisins og sér til þess að jafnvægi sé á milli raforkunotkunar og raforkuvinnslu.

Hlutverk kerfisstjórnar

Samkvæmt raforkulögum ber Landsnet ábyrgð á öruggri stýringu á raforkukerfi landsins og á að tryggja að stýring kerfisins standist þær gæðakröfur sem til hennar eru gerðar.

Það er hlutverk kerfisstjórnar að annast stýringu raforkukerfisins en hún hefur aðsetur í stjórnstöð Landsnets.

Í stuttu máli

Hlutverk kerfisstjórnar Landsnets er m.a. að:

  • Sjá til þess að alltaf sé jafnvægi á milli raforkunotkunar og raforkuvinnslu.
  • Tryggja að nægjanlegt reiðuafl sé ávallt fyrir hendi í raforkukerfinu.
  • Ákveða stöðu flutningskerfisins á hverjum tíma, þ.e. stöðu rofa og spennu.
  • Samræma áætlanir um rof rekstrareininga sem hafa áhrif á rekstur flutningskerfis og dreifikerfa.
  • Stýra kerfisuppbyggingu eftir að rekstrartruflanir hafa átt sér stað og skerða álag hjá notendum í þeim tilfellum sem þörf er á.
  • Bregðast við flutningstakmörkunum á öruggan og sanngjarnan hátt.
  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410