Flutningstöp
Flutningstöp kallast það afl sem tapast í kerfinu við flutning raforkunnar vegna viðnáms í línuleiðurunum.
Þar sem heildarviðnámið er yfirleitt mjög lítið fyrir stuttan bút af línuleiðara fer leiðaratapið ekki að hafa veruleg áhrif fyrr en línurnar eru orðnar langar og mikið er flutt um þær á hárri spennu.
2,5% af heildarinnmötun árið 2008
Leiðaratap hefur því ekkert að segja í rafmagnslögnum húsa en verður umtalsvert í raforkukerfum. Til glöggvunar má nefna að meðalflutningstöp í raforkukerfi Landsnets í október 2008 var rúmlega 45 MW, sem er álíka mikið og aflgeta einnar vélar í Búrfellsvirkjun. Tap í flutningskerfi Landsnets á árinu 2008 var 2,5% af heildarinnmötun.
Landsnet kaupir rafmagn á raforkumarkaði til að mæta flutningstapi í kerfinu. Að þessu leyti á Landsnet það sameiginlegt með stórnotendum raforku að þurfa að kaupa orku í miklu magni fyrir starfsemi sína.