Kerfisþjónusta Landsnets er skilgreind sem sú þjónusta sem flutningsfyrirtæki og dreifiveitur veita til að tryggja gæði raforku og öruggan rekstur og stöðugleika flutnings- og dreifikerfis. Í kerfisþjónustu Landsnets felst reiðuafl vegna tíðnistýringar, reiðuafl vegna truflana, hægvirkt varaafl, hraðvirkt varaafl og varalaunafl.

Reiðuafl
Reiðuafl er umframafl sem vélar raforkukerfisins geta framleitt til viðbótar því sem þær framleiða alla jafna.
Annars vegar er talað um reiðuafl vegna tíðnistýringar sem er það afl sem notað er til að jafna út frávik milli framleiðslu og notkunar í eðlilegum rekstri. Hins vegar er reiðuafl vegna truflana sem er notað til að jafna út stór frávik í kjölfar truflana.
Varaafl
Með varaafli er átt við framleiðslugetu tiltekinna aflstöðva sem yfirleitt eru dísil- eða gasknúnar og eingöngu notaðar þegar truflanir verða eða unnið er að viðhaldi í flutningskerfinu. Varaafl er ekki tiltækt þegar í stað eins og reiðuafl heldur eru viðkomandi aflstöðvar yfirleitt ekki ræstar fyrr en ljóst er að þeirra sé þörf. Annars vegar er talað um hraðvirkt varaafl, sem er tiltækt innan 15 mínútna, og hins vegar hægvirkt varaafl sem tekur lengri tíma að ræsa.
Landsnet hefur aðgang að varaafli á svæðum sem ekki njóta nema einnar tengingar við meginflutningskerfið. Ef þessi eina tenging rofnar er hægt að grípa til varaafls á viðkomandi svæðum. Nánar er kveðið á um varaafl í skilmálum um öflun og uppgjör varaafls.
Varalaunafl
Eitt af hlutverkum Landsnets er að halda spennu innan vissra marka í tengistöðum flutningskerfisins. Hægt er að hafa áhrif á spennu með því að auka eða minnka launaflsframleiðslu rafala eða nota annan spennustýringarbúnað eins og þétta og spólur.
Í skilmálum um kerfisþjónustu Landsnets er varalaunafl skilgreint sem launafl sem annaðhvort er ræst sjálfvirkt eða handvirkt meðan á skammvinnu fráviki frá eðlilegu rekstarástandi stendur. Með sjálfvirkri ræsingu er átt við að launaflsframleiðsla rafala sé löguð að ákveðnu spennugildi en einnig getur verið um að ræða sjálfvirka innsetningu búnaðar, þ.e. þétta, SVC (e. static var compensator) eða spóla. Með handvirkri ræsingu er vísað til handvirkrar innsetningar þessa búnaðar.