Landsnet :: Raforkukerfið :: Kerfisstjórnun :: Hlutverk kerfisstjórnar :: Markaður fyrir reglunarafl

Markaður Fyrir reglunarafl

Dægursveifla á afli innmötunar og úttektar Smelltu á mynd til að stækka

Dægursveifla á afli innmötunar og úttektar á degi mesta orkuflutnings (23.12.2009) og minnsta orkuflutnings (2.8.2009) að sumri.

Þar sem raforkuframleiðslan á Íslandi fer viðstöðulaust út á flutningskerfið og er notuð jafn óðum um allt land, er nauðsynlegt að tryggja að jafnvægi sé á milli framleiðslu rafmagns og notkunar.

Til að það sé hægt rekur Landsnet svokallaðan reglunaraflsmarkað fyrir það afl sem fyrirtækið útvegar til að jafna frávik milli áætlaðrar aflnotkunar og raunverulegrar aflnotkunar í raforkukerfinu.

Nákvæmar áætlanir mikilvægar

Kerfisstjórn sér til þess að ávallt sé ákveðið framboð af reglunarafli á markaðinum sem grípa má til ef raforkuskortur verður í kerfinu eða sem hægt er að miðla annað ef um offramboð er að ræða.

Grunnforsenda þess að hægt sé að viðhalda jafnvægi vinnslu og notkunar í raforkukerfinu er að áætlanir markaðsaðila um eigin vinnslu og notkun séu sem nákvæmastar. Kerfisstjórn fer yfir þessar áætlanir til að tryggja að samræmi sé á milli þeirra.

  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410