ISBAS raforkumarkaður
Eitt af meginhlutverkum Landsnets er að stuðla að virkari markaði fyrir viðskipti með raforku.
Áfram er fylgst með áhuga aðila raforkumarkaðarins á opnun uppboðsmarkaðar fyrir raforku, en undirbúningi fyrir skipulagðan markað lauk árið 2008 og var raforkumarkaðurinn tilbúinn til gangsetningar í nóvember það ár.
Aðilar markaðarins hafa ekki enn sýnt opnun markaðar þann áhuga sem nauðsynlegur er til að tryggja farsælan rekstur hans og var hann því ekki opnaður á árinu 2010.