Fjarskipti
Upplýsingatæknideild ber ábyrgð á fjarskiptamálum Landsnets. Forsenda hnökralauss reksturs orkustjórnkerfis Landsnets er aðgangur að öruggu fjarskiptakerfi um allt land.

Þúsundir boða á mínútu
Stjórnstöð Landsnets er í stöðugu sambandi við allar einingar raforkukerfisins og tengist orkumannvirkjum víðs vegar um land, ýmist með ljósleiðurum, örbylgjusamböndum eða öðrum fjarskiptaleiðum. Eftir þessum leiðum berast að jafnaði þúsundir boða á mínútu milli tölvukerfis stjórnstöðvarinnar og meira en 60 útstöðva sem gerir kleift að meta ástand kerfisins á hverjum tíma.