Landsnet :: Raforkukerfið :: Upplýsingatækni :: Orkustjórnkerfi

Stjórnstöð Landsnets Smelltu á mynd til að stækka

Stjórnstöð Landsnets við Bústaðaveg.

Orkustjórnkerfi

Orkustjórnkerfi Landsnets (OSK) tryggir gæði og afhendingaröryggi nær allrar raforku á Íslandi.

Kerfið er forsenda þess að hægt sé að stýra raforkukerfinu og að það geti á hverjum tíma annað breytilegu álagi, tryggt rekstraröryggi og hagkvæmni í rekstri.

Viðamikill tölvu- og tæknibúnaður

Þungamiðja OSK er tölvubúnaður sem stýrir og vaktar raforkukerfið. Með OSK er einstaka einingum raforkukerfisins, eins og rofum í tengivirkjum og vélum virkjana, fjarstýrt frá stjórnstöð Landsnets. OSK safnar viðamiklum upplýsingum úr raforkukerfinu og eru þær notaðar við rauntímastýringu og til úrvinnslu upplýsinga.

Mælingar eru uppfærðar með nokkurra sekúndna millibili og birtast viðvaranir á þar til gerðu viðmóti um leið og þær berast. Í OSK eru ýmis reiknilíkön sem notuð eru til áætlanagerðar við rekstur raforkukerfisins og til að auka rekstraröryggi. Þjálfunarhermir er einnig hluti af OSK og er hann notaður til að þjálfa starfsmenn sem sinna stýringu og gæslu raforkukerfisins.

  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410