Landsnet :: Raforkukerfið :: Viðskiptavefur
Í hnotskurn
Viðskiptavefurinn er aðgangstýrð upplýsingaveita sem ætluð er hagsmunaaðilum á raforkumarkaði þar sem hægt er að komast í öruggt dulkóðað gagnasamband og hætta á aðgengi annarra að viðkvæmum trúnaðarupplýsingum er lágmörkuð.
Tengiliður
Garðar Lárusson
Viðskiptastjóri
Gylfaflöt 9,
112 Reykjavík
gardarl@landsnet.is
S: 563 9457

Fyrsta síða Viðskiptavefs eftir innskráningu Smelltu á mynd til að stækka

Innskráningarsíða Viðskiptavefs.

Viðskiptavefur

Viðskiptavefur Landsnets er aðgangsstýrð upplýsingaveita fyrirtækisins ætluð hagsmunaaðilum á íslenskum raforkumarkaði.

Hagsmunaaðilar á raforkumarkaði eru t.d. raforkuframleiðendur, dreifiveitur, stórnotendur, sölu- fyrirtæki og Orkustofnun.

Aðgengi

Aðgengi að upplýsingum á viðskiptavefnum er stýrt með aðgangs- og lykilorðum. Sérstökum gagnasvæðum er úthlutað fyrir hvern hagsmunaaðila og hefur hann einn aðgengi að upplýsingum sem þar eru vistaðar.

Beitt er öruggum rekjanlegum aðferðum við úthlutun og notkun aðgangsorða en hver aðili ber ábyrgð á meðferð og notkun upplýsinganna sem birtar eru á viðkomandi gagnasvæði.

Við innskráningu á viðskiptavef Landsnets kemst viðkomandi notandi í öruggt, dulkóðað gagnasamband þar sem hætta á aðgengi annarra að viðkvæmum trúnaðarupplýsingum er lágmörkuð.

Innskráning

Upplýsingatæknideild Landsnets úthlutar aðgangs- og lykilorðum að viðskiptavef fyrirtækisins. Í innskráningarreitina fyrir aðgangs- og lykilorð eru slegin inn aðgangsorð sem viðkomandi notandi hefur fengið úthlutað.

Eftir að notandi hefur skráð sig inn á viðskiptavefinn birtast valmöguleikar fyrir þær upplýsingar sem eru tengdar honum. Um er að ræða t.d. vinnslu- eða notkunaráætlanir, sem hann hefur skilað inn, mæliraðir um inn- eða útmötun og fleiri upplýsingar sem tengjast honum.

Að notkun lokinni skráir notandi sig út á sérstökum útskráningarhnappi. Við það lokast fyrir öruggt aðgengi að viðskiptavefnum og notandanum er stýrt inn á almenna vefsíðu Landsnets.

  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410