Smelltu á mynd til að stækka
Vegslóðar sem lagðir hafa verið vegna raforkunetsins hafa opnað almenningi aðgengi að nýjum útivistarsvæðum.
Ferðamennska
Mannvirki flutningskerfisins geta haft áhrif á útivist og ferðamennsku í næsta nágrenni sínu.
Þó einhverjir líti mest til sjónrænna áhrifa háspennulína er hinu ekki að neita að í mörgum tilfellum opna þessar framkvæmdir fólki nýja möguleika sem hafa iðulega verið nýttir.
Línuvegir
Þegar háspennulínur eru lagðar er algengt að lagðir séu línuslóðar meðfram þeim. Sumir þessara slóða hafa opnað almenningi aðgengi að landsvæðum sem áður voru óaðgengileg nema kunnugum.
Nefna má sem dæmi að einn fjölfarnasti hálendisvegur Íslands í dag er einmitt einn þessara línuvega meðfram Sultartangalínum 1 og 3. Slóðinn liggur meðfram brún hálendisins sunnan jökla og er vinsælasti hluti hans frá Kjalvegi í austri að Uxahryggjarvegi í vestri. Á þessari leið er m.a. stórfenglegt útsýni til Langjökuls, Hlöðufells og Skjaldbreiðar.