Víða um land hafa raforkufyrirtækin átt drjúgan þátt í uppgræðslu á örfoka svæðum í nágrenni raforkukerfisins.
Síðustu ár hefur Landsnet meðal annars unnið með Landgræðslu ríkisins að uppgræðslu og stöðvun jarðvegseyðingar sunnan Langjökuls en mikið sandfok á Suðurlandi hefur meðal annars átt upptök sín á þessu svæði þar sem jöklar hafa hopað undanfarna áratugi.
Uppgræðsla sunnan Langjökuls
Frá árinu 2006 hefur Landsnet unnið með Landgræðslu ríkisins að uppgræðslu og stöðvun jarðvegseyðingar í nágrenni háspennulína á afréttinum sunnan Langjökuls.
Svonefnd Sultartangalína var lögð á þessu svæði í upphafi níunda áratugarins og var línuvegur lagður meðfram henni. Vegurinn hefur frá upphafi verið nokkuð fjölfarinn á sumrin enda opnaðist með honum leið með einstaklega fagurri fjallasýn í björtu veðri. Svæðið er hins vegar hálent og mjög illa farið vegna uppblásturs og gróðureyðingar.
Markmið samstarfs Landsnets og Landgræðslunnar er að skapa varanlega gróðurþekju á ákveðnum svæðum sunnan Langjökuls, stöðva sandfok og aðra jarðvegseyðingu og styrkja rýr gróðurlendi. Í þessu samstarfi leggur Landgræðslan til fagþekkingu og stýrir framkvæmdinni en Landsnet kostar aðföng vegna hennar. Landgræðslustarfið hefur þegar borið sýnilegan árangur. Fræbankar, sem enn lúrðu í jörðu, styrktust og ýmis grös og plöntur, eins og grávíðir og smjörgras, hafa gægst upp.
Smelltu á mynd til að stækka